Við erum búin að gera helling undarfarnar vikur. Sumarfríið byrjaði á því að fara á ættarmót hjá fjölskylduni pabba meigin. Sem var rosa stuð, ættarmótið var í bústað í Grímsnesi á sumarbústaðarlóð Óla frænda, við tjölduðum á lóðinni. Það var rosa gaman í rigningunni. Það ringti svo mikið að nýja tjaldið okkar lak.
Eftir þá helgi var ferðinn haldið í Latabæ, sem er bústaður Jónasar og Sigrúnar systir Óskars. Þar fengum við gistingu í nokkra dag út af rigningu. Til að þurka tjaldið og bíða eftri Önnu og Dána. En þetta er meiri latibærinn þar var sofið og borðað til skiftis, bara gott. En á Þriðjudegi komu Anna og Dáni og tóku okkur með í fjölskylduútilegu. Þá var ferðinn haldið þar sem SÓLINN ER það var á Kirkjubæjarklaustri, þar er sko flott, hef aldrei farið á flottar tjaldstæði á landinu, vorum þar í nokkra dag í 20 - 27 stig hita. Maður var farinn að taka smá lit.
Það var ákveðið að halda áfram og breytta aðeins til. Ferðinni var haldið í áttina að galtalæk, ákveðið var að sofa ekki þar og héldum áfram. í þjórsársdal. Sem var rosalega fínt, þar var samai hitinn.
Skoðuðum 9 virkjanir í þessari útilegu. Enduðum við ferðina í Latabæ í mat. Hittum restina af farmelíuni hans Óskars. Sem var rosalega kósí, en við komum eins og svertingjar úr sumarfríi. Þarf sko ekki að fara til útlanda til að vera brún.
Við erum búin að vera heima núna í nokkra daga og hafa það kósí. Fórum í Bása í gólf með Önnu og Dána á miðvikudaginn, skutum 100 kúlum hver. Það var rosalega gaman þó að ég hafa ekki skotið lengra en 50 -75m. En Óskar skaut 150m +. En þetta var ekki dýrt, 100 kúlur á 900 kr og frí afnott af kilfum. Ég mæli með þessu. Eftir að við vorum búin að skjóta 400 kúlum þá var ferðinni haldið niður á laugarveg að fá sér að borða á Rossopromodoro. Rosalega gott að borða þar.
Í kvöld fór ég að hjálpa Hrafnhildi að sauma gardínur í barnaherberið hans Arngríms Benedikt það gekk líka svona rosalega vel, þetta voru fystu gardínurnar sem ég sauma alein (ekki með mömmu) og nokkra kodda í stíl. Þetta var rosalega gaman.

Latibær

Skógarfoss

Dirhólaey

Kirkjubæjarklaustur

Allt Gengið. Óskar fyrir aftan myndavélina

Sigölduvirkjun (held ég)

þjórsársdalur
En nú ætla ég að segja ykkur svoldið! Hvað haldið þið? Ég vaknaði með 6 frunsur á neðri vörinni á mánudaginn. Ekkert rosalega flot,. ég er eins og stjörnurar í hollywood með silikon í vörunum. Rosalega flott! Er með frunsukerm á allri neðri vörinni.
en þanga til næst...........................